RECOMMENDED: Jessica Auer - Heiðin, exhibition, Iceland / 2024.04.15. - 2024.06.08.



Jessica Auer: Heiðin

15. apríl – 8. júní, 2024   Sýningin samanstendur af nýlegum ljósmyndum og vídeóverkum eftir kanadíska ljósmyndarann Jessicu Auer sem búsett er á Seyðisfirði. „Heiðin“ er yfirstandandi verkefni sem kannar sögu og þróun vegs 93, hæsta fjallvegar á Íslandi og einu landleiðina til og frá Seyðisfirði. Á veturna er vegurinn lokaður dögum saman og einangrar íbúa frá vistum og restinni af samfélaginu. Þessi einstaki lífsmáti, einangraður og ótryggur, er í róttækum breytingum þar sem 13 kílómetra jarðgöng munu brátt leysa Fjarðarheiði af hólmi. „Heiðin“ skrásetur þessa mikilvægu breytingu í gegnum mismunandi miðla; kvikmyndun, ljósmyndun og frásagnir frá undanförnum árum.

Listamiðstöð/Art Center

Austurvegur 42, 710 Seyðisfjörður


www.jessicaauer.com