RECOMMENDED: Tweed Ride Reykjavik 2026 / 2026.06.06. 🚴 📯 🇮🇸

Vertu með okkur þann 6.júní er við klæðum okkur upp og hjólum á fallegum hjólum um miðbæ Reykjavíkur.
Allir eru velkomnir að taka þátt. Ekkert þáttökugjald.
Dagskrá
Við byrjum daginn að hittast fyrir framan Berlin klukkan 13:30.
Svo hjólum við að Hallgrímskirkju þar sem við munum afhenda númer til þeirra sem náðu ekki að sækja það til okkar. Stefnum á að vera hjá Hallgrímskirkju klukkan 14:00.
Myndartaka klukkan 14:45 og svo leggjum við af stað.
Við byrjum á því að hjóla í svona 30-40 mínútur og stoppum svo til að fá okkur hressingu. Eftir hlé förum við aftur af stað og hjólum í 30-40 mínútur. Fáum okkur aftur hressingu og þátttakendur kjósa fallegasta hjólið, bezt klæddi herramaðurinn og bezt klædda daman.
Endum svo daginn á því að fara og fá okkur eitthvað að borða, (tölvupóstur sendur á þátttakendur til að kanna áhuga).
Skráðu þig og vertu með!
Organized by
Reiðhjólaverzlunin Berlin
Háaleitisbraut 58, 108 Reykjavíkurborg, Ísland
FOR MORE: www.hjolreidar.is